MENNINGARLÆSI
Margar skilgreiningar eru til á menningu. Mannfræðingar nota hugtakið til að lýsa þeirri viðleitni mannsins, að skipa lífsreynslu sinni í flokka eða mynstur og tjá hana á skipulegan máta. Menning hefur einnig verið skilgreind sem samansafn hegðunarmynstra sem finnast í ákveðnum samfélögum og tákna sem gefa hegðuninni ákveðna merkingu.

Augu fólks sem er í viðskiptum hafa í vaxandi mæli verið að opnast fyrir því að til eru ýmsar fleiri viðskiptahindranir, en hefðbundnir tollar, innflutningskvótar eða leyfisveitingar. Menningarlegir þröskuldar og tungumálaörðugleikar geta verið jafn erfiðir við að eiga – jafnvel þegar verið er að fjalla um það sem við í daglegu tali köllum "sama" menningarsvæðið líkt og Evrópu, hvað þá þegar um er að ræða viðskipti milli ólíkra menningarheima.

Því er víða farið að leggja áherslu á „menningarlæsi“ viðskiptalífsins, enda má til sanns vegar færa að þar liggi ein af forsendum þess að vel gangi í útrás viðskipta til erlendra landa. Hlutverk utanríkisþjónustunnar hefur m.a. verið skilgreint sem aðstoð við fyrirtæki í sókn á erlenda markaði, en þegar á hólminn er komið hlýtur það hins vegar að vera fyrirtækjanna sjálfra að koma sér upp þekkingu af þessu tagi, til þess að starfsemin geti vaxið og dafnað frá degi til dags.

Enskukunnátta er nauðsynleg í öllum atvinnugreinum

Þekking á tungumáli eykur skilning á menningu og byggir brýr á milli fólks. Til framtíðar verður vöxtur íslensks viðskiptalífs á nýjum mörkuðum og í samskiptum við aðra menningarheima. Þess vegna þurfum við að aðlaga okkur öðrum viðskiptavenjum og stjórnunarstíl og annars konar hugsunarhætti og framkomu.

Tungumál eru þannig lykill að heiminum og byggja brýr á milli ólíkra menningarheima. Víðtæk og haldgóð kunnátta í erlendum tungumálum og menningarlæsi stuðla að árangri í viðskiptum og greiða fyrir farsælum samskiptum á alþjóðavettvangi.

Erlendar rannsóknir sýna fylgni á milli tungumálakunnáttu og árangurs á erlendum mörkuðum. Skýrsla frá rannsóknarstofnun tungumála (CILT) greinir frá því að 75% stjórnenda Evrópskra alþjóðafyrirtækja líta á góða tungumálakunnáttu sem grundvallarskilyrði við ráðningu nýrra starfsmanna.

Menningarvitund
Lingo-málamiðlun er í samstarfi við nokkur af þekktustu fyrirtækjum heims á sviði menningarsamskipta og býður námskeið í menningarlæsi og samskiptum bæði hér á landi og erlendis.

Þessi þjónusta er með ýmsu móti. Hún getur verið í formi KYNNINGA (fundir og ráðstefnur), eða NÁMSKEIÐA þar sem fyrirtækjum býðst ýmiss þjónusta sem miðar að því að auka menningarskilning og minnka tungumálahindranir, sem kunna að standa í vegi fyrir árangri í alþjóðlegum umsvifum.

GREININGAR: Einnig eru í boði eru úttektir á samskiptaháttum viðkomandi fyrirtækis með hliðsjón af menningarmun og tungumálanotkun. Hægt að gera heildarúttekt, eða taka fyrir afmörkuð svið og markaðssvæði. SJÁ NÁNAR


Lingo - Málamiðlun Bankastræti 5 • 101 Reykjavík • Sími 562 2220 • info@lingo.is