IED
Matarlist á Ítalíu
London
Diploma nám
Glasgow

ALÞJÓÐLEGIR FAGSKÓLAR
Þeir sem stunda nám í alþjóðlegum fagháskólum eiga góða möguleika á að hitta rétta fólkið og komast áfram á alþjóðlegum markaði. Nemendur koma víða að úr heiminum og þannig skapast alþjóðlegt umhverfi sem gerir dvölina að ógleymanlegum tíma. Nám í slíkum skólum tengist einnig nýjungum og þróun í menntun og er í raunhæfum tengslum við atvinnulífið. Hér fyrir neðan eru upplýsingar um nokkra viðurkennda skóla sem við störfum með, þar sem fagmennska og agi eru hluti daglegs lífs.


HÖNNUNARNÁM Á ÍTALÍU, EÐA Á SPÁNI
Istituto Europeo di Design (IED) hefur starfað í rúm 40 ár á sviði menntunar og rannsókna í hönnun, tísku, samskiptatækni og sjónrænum listum. IED rekur hönnunarskóla í Flórens, Feneyjum, Milanó, Róm, Torino, Barcelona og Madrid. Stefna IED er að bjóða ungu fagfólki uppbyggilega menntun á sviði hönnunar og tísku og gera þeim jafnframt mögulegt að byggja upp farsælan starfsferil. Sjá nánar



HÖNNUNAR- OG LISTNÁM Í LONDON
University of the Arts London (UAL) býður fjölbreytt nám á sviði hönnunar og lista og er einn af fimm stærstu háskólum sinnar tegundar í Evrópu. UAL er byggður upp af sex heimsþekktum lista- og hönnunarskólum, sem bjóða fjölmargar lengri og styttri námsleiðir á sviði hönnunar og lista, sjónlista, tísku, margmiðlunar, markaðssamskipta og sviðslista.
London hefur löngum verið kölluð "The Creative Capital of the World" og áhrifa tísku- og hönnunarstrauma borgarinnar gætir um víða veröld. Sjá nánar:


ARKITEKTÚR, HÖNNUNAR- OG LISTNÁM Í GLASGOW
The Glasgow School Of Art er einn af elstu sjálfstætt starfandi listaskólum á Bretlandseyjum. Skólinn er með aðsetur miðsvæðis í Glasgow, stærstu borg Skotlands, sem er af mörgum talin ein af fremstu menningarborgum Evrópu. Hjá GSA er í boði fjölbreytt nám í arkitektúr, hönnun og listum. Sjá nánar:

HÖNNUN, LISTIR OG TISKA Í FLÓRENS
Palazzi er samtök fagháskóla sem starfa í miðborg í Flórens á Ítalíu.
Diploma nám er sérsniðið starfsmenntanám (grunnháskólanám) í fagháskóla og tekur eitt til þrjú ár. Lögð er áhersla á samþættingu námsgreina og reynt er að tengja saman bóklegt nám og verklegt, kenningu og framkvæmd. Námið fer að mestu fram á ensku.
Sjá nánar:

MATARLIST
Apicius - The Culinary Institute of Florence er alþjóðlegur sérskóli þar sem fólk frá öllum heimsálfum kemur saman til að læra ekta ítalska matarlist og fer kennslan fram á ensku. Kennarar skólans eru allir menntaðir og viðurkenndir á sínu sérsviði og hafa áralanga starfsreynslu við sitt fag. Hjá Apicius er lagður metnaður í að kenna og kynna sögulega og listræna ítalska matargerð. Leitast er við að miða námið að þörfum þeirra sem eru að kynnast ítalskri matargerð og vínsmökkun í fyrsta sinn, sem og hinum sem þegar eru komnir á bragðið. Sjá nánar




Lingo - Málamiðlun Bankastræti 5 • 101 Reykjavík • Sími 562 2220 • info@lingo.is