![]() |
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| ISTITUTO
EUROPEO DI DESIGN (IED) BARCELONA | MADRID | MILAN | ROME | TURIN | VENICE | FIRENZE Istituto Europeo Di Design, einn virtasti hönnunarskóli Evrópu, hefur í rúm 40 ár verið í fararbroddi á sínu sviði. IED býður hagnýtt nám sem sameinar frumkvæði, hugmyndir og tækni. Stefna skólans er að vera nýjungargjarn, en raunsær í kenningum, tilraunum og verklegri hagnýtingu hugmynda. Ennfremur er byggt á að verkvit, skilningur og þekking sé metin út frá hagnýtum gildum. Samstarf við helstu fyrirtæki heims á sviði hönnunar er þungamiðja kennslustefnu IED, þar sem verklegt og fræðilegt nám helst í hendur. Hjá IED býðst þriggja / fjögurra ára BA nám, þriggja ára Diploma nám, eins árs nám og mastersnám á ýmsum sviðum hönnunar og tengdra greina.
IED skólarnir eru allir reknir eftir sömu hugmyndafræði,
en hver og einn hefur samt sína sérstöðu byggða
á sérhæfingu, staðsetningu og svæðisbundinni
menningu. Skólarnir eru vel í borg settir, í góðu
húsnæði og tæknilega vel búnir. Kennsla fer fram á ensku,
ítölsku, eða spænsku. UNIVERSITY OF THE ARTS LONDON University of the Arts London er einn af fimm stærstu háskólum sinnar tegundar í Evrópu og er byggður upp af sex heimsþekktum lista- og hönnunarskólum í London. UAL býðuðr mikið úrval lengri og styttri námsleiða á sviði hönnunar, tísku, margmiðlunar, markaðssamskipta, lista, sjónlista og sviðslista. Að jafnaði stunda um 16 þúsund nemar fullt nám við University of the Arts London. Auk Breta og Evrópubúa (EU) eru 15% nema International Students, sem koma víðsvegar að úr heiminum. Þrátt fyrir stærð og fjölbreytni hefur UAL tekist að viðhalda skólaumhverfi sem er afar hvetjandi og einstaklingsmiðað. University of the Arts London aðstoðar við húsnæðisleit og fyrsta árs nemum er tryggt húsnæði á heimavist "Residence". Sjá nánar: Sex
skólar eru reknir undir hatti University of The Arts London: THE GLASGOW SCHOOL OF ART
PALAZZI - HÖNNUNAR- OG LISTNÁM Í FLÓRENS Palazzi er samtök fagháskóla sem starfa í miðborg í Flórens á Ítalíu. Skólar sem starfa innan Palazzi stefnunnar leggja áherzlu á að mynda góða umgjörð og aðstæður fyrir nemendur; gefa þeim tækifæri til að þróa og rækta hæfileika sína og hvatningu til að setja markið hátt. Skólarnir veita nemendum aðstoð við húsnæðisleit. Í boði eru studio íbúðir, auk íbúða sem hægt er að deila með öðrum nemum. Námið fer að mestu fram á ensku. DIPLOMA NÁM (Certificate Programs) Diploma nám er sérsniðið starfsmenntanám (grunnháskólanám) í fagháskóla og tekur eitt til tvö ár. Lögð er áhersla á samþættingu námsgreina og reynt er að tengja saman bóklegt nám og verklegt, kenningu og framkvæmd. Sjá nánar: APICIUS - International School of Hospitality Í boði er nám í viðskiptum og veitingaþjónustu, matreiðslu, vínþjónustu, blaðamennsku og útgáfu. (Eins árs nám, tveggja ára nám, mastersnám). DIVA - Digital Imaging and Visual Arts Diva býður tvær námsleiðir. Aðra í sjónrænum listum (web design, graphic and eco-sustainable design) og stafrænni ljósmyndun (digital photography). (Tveggja ára nám). FAST - Fashion and Accessories Studies and Technology Í boði er nám í tískuhönnun, hönnun fylgihluta, kynningarmálum og markaðsfræðum (Eins árs og tveggja ára nám). APICIUS, FAST, and FUA School of Fine Arts Nám í útgáfufræðum. Tvær annir þar sem nemar sækja grunnnámskeið og styttri fyrirlestra sem beinast að matargerð, tísku og listum. (Eins árs nám). Starfsólk Lingo veitir nánari upplýsingar, leiðbeinir um námsval, útvegar umsóknargögn og aðstoðar við umsóknarferlið. Hafðu samband Lingo
- Málamiðlun
Bankastræti
5 101 Reykjavík Sími 562 2220 info@lingo.is |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() ![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||