![]() |
|
|
|||||||||||||||||||||||||
|
NÁM Í KVIKMYNDAGERÐ LONDON COLLEGE OF COMMUNICATION BA nám (BA Honours) Film and Television Nemar byggja upp reynslu í gegnum þjálfun á vinnustofum og við ýmiss verkefni í kvikmyndagerð, framleiðslu sjónvarpsefnis og videoverkefni. Á námstímanum byggja nemar upp og þróa samstarfshæfileika sína í hópvinnu og starfstengdu námi. Á þriðja ári sérhæfa nemar sig í hljóðhönnun, klippingu, kvikmyndatöku, framleiðslu eða leikstjórn. Sjá nánar: Grunnnám (FdA): Production for Live Events and Television Á fyrsta ári er nemum kennt að þróa hæfileika sína í framleiðsluumhverfi fyrir ólíka viðskiptavini. Unnið er í hópvinnu og einstaklingsbundið í sérbyggðum upptökuverum. Á öðru ári eru í boði valáfangar þar sem gefst tækifæri til sérhæfingar í hinum ýmsu sviðum innan beinna útsendinga og sjónvarpsframleiðslu. Á námstímanum er unnið ýmisst á völdum vinnustöðum eða í myndverum skólans. Samhliða verklegri þjálfun er fræðilegur þáttur sem styður við raunfærnina. Inntökuskilyrði eru meðal annars að hafa lokið grunnnámi í listum og hönnun, auk þess að leggja fram sýnismöppu. Sjá nánar: WIMBLEDON
COLLEGE OF ART - LONDON ARTS UNIVERSITY COLLEGE BOURNEMOUTH AUCB er í hópi Breskra fagháskola sem hafa sérhæft sig í hönnunar og listnámi. Skólinn var stofnaður árið 1985 og nýtur almennrar viðurkenningar meðal þeirra sem starfa á sviði skapandi greina (Creative Industries). Nemar koma víða að úr heiminum og þannig verður til alþjóðlegt andrúmsloft á enskum vettvangi. Kennarar hjá AUCB eru sérfræðingar á sínu sviði og áhersla er lögð á einstaklingsmiðað nám sem og hópavinnu. Sjá nánar: Animation Production • Digital Media Production • Film Production. Sjá nánar: BOURNEMOUTH UNIVERSITY Bournemouth University er alhliða háskóli, en býður einnig nám í hönnun, margmiðlun og sviðslistum. BU er einn af þekktari háskólum á Bretlandseyjum fyrir kennslu, rannsóknir, frumkvöðlastarf og fagmennsku. BU er vottaður sem “Center of Excellence” á sviði margmiðlunar og kvikmyndagerðar. Sjá nánar: Digital Media Design • Radio • Scriptwriting for Film and Television • Television Production • Media Production • Media Practice • Film Production and Cinematography • Photography. Sjá nánar: THE ARTS PLUS ENGLISH PROGRAM NEW YORK CITY Enska og Kvikmyndagerð Hjá Rennert Bilingual eru í boði námskeið í sviðslistum og kvikmyndagerð fyrir byrjendur, sem hægt er að bæta við fjögurra vikna enskunámskeið. Enskukennslan er 15 stundir á viku og síðan er hægt að bæta við námskeiði í kvikmyndagerð, til dæmis: FILMMAKING sem byggist á fjögurra vikna enskunámi og síðan bætast við fjórar vikur í kvikmyndagerð, eða SHORT-TERM-DIGITAL-FILMMAKING sem er tekið samhliða fjögurra vikna málanáminu. Sjá nánar: Starfsólk Lingo veitir nánari upplýsingar, leiðbeinir um námsval, útvegar umsóknargögn og aðstoðar við umsóknarferlið. Hafðu samband Lingo
- Málamiðlun
Bankastræti
5 101 Reykjavík
Sími 562 2220 info@lingo.is |
||||||||||||||||||||||||||