Hönnun
Hönnun
Kvikmyndir
Ljósmyndun
Margmišlun
Matarlist
svišslistir
višskipti
nįmskeiš
nįmslįn
Umsokn
England
Italia
Kanda
Skotland
Spann
 
Apicius
Diploma nám
 
 
 
 
ÍTÖLSK MATARLIST HJÁ APICIUS
Apicius - The Culinary Institute of Florence er alþjóðlegur fagskóli þar sem fólk frá öllum heimsálfum kemur saman til að nema ekta ítalska matarlist og fer kennslan fram á ensku. Kennarar skólans eru allir menntaðir og viðurkenndir á sínu sérsviði og hafa áralanga starfsreynslu.

Apicius leggur metnað í að kenna og kynna sögulega og listræna ítalska matargerð og miðast námið að þörfum þeirra sem eru að kynnast ítalskri matargerð og vínsmökkun í fyrsta sinn, en ekki síður hinum sem þegar eru komnir á bragðið.

Nám hjá Apicius hentar því fólki á öllum aldri sem hefur áhuga og löngun til að undirbúa sig fyrir störf á sviði þjónustu og matargerðar, bæta við fyrri menntun eða bara njóta hluta sumarleyfisins við eldamennsku, vínsmökkun og upplifa ítalska matargerð í öllu sínu veldi.


FLÓRENS
er sannkölluð vagga lista og menningar, þar sem matur og vín eru í hávegum höfð. Apicius skólinn er staðsettur í miðborg Flórens rétt við Central San Lorenzo, sem gefur nemendum óendanleg tækifæri til að upplifa borgina og menninguna.
Sjá nánar

PROFESSIONAL PROGRAMS
Culinary Arts • Master in Italian Cuisine • Hospitality Management • Wine Expertise • Italian Baking & Pastry • Food Communications • Design & Marketing for the Food Industry • La Bella Tavola: Art Production for the Food Industry. Sjá nánar

Certificate Program - First Year:
Culinary Arts • Baking & Pastry • Food Communication • Wine Studies • Hospitality Management.
Eins árs nám í ofangreindum fögum er frábær upplifun fyrir þá sem vilja kynnast ítalskri matarlist og þjónustu, en er ekki síður góður grunnur fyrir þá sem hafa hug á frekari enntun á þessu sviði.

Associate Certificate Program - Second Year:

Culinary Arts • Hospitality Management
Tveggja ára nám í “Culinary Arts” eða “Hospitality Management” er tilvalið fyrir þá sem hafa áhuga á að starfa innan gestaþjónustu og matvælagreina eða hafa þegar einhverja reynslu af matargerð og þjónustu. Námið leiðir til “diploma” sem greiðir leiðina að góðu starfi hér heima og erlendis.

Two year Associate Certificate - Hospitality Management

Tveggja ára nám til viðbótar hjá Apicius í “Culinary Arts” eða “Hospitality Management” leiðir til grunnháskólaprófs (sambærilegt BA).
Einnig er í boði að fara beint inn á þriðja ár hjá University of South Florida í Bandaríkjunum og ljúka þaðan BA námi í “Hospitality Management”.

Master in Italian Cuisine - One Year Master Program

Eins árs mastersnám (4 annir) er fyrir þá sem lokið hafa BA, eða menntaða þjóna og matreiðslufólk sem starfað hafa í lengri eða skemmri tíma við sitt fag, en vilja víkka sjóndeildarhringinn og bæta við sig faglega í Ítalskri matarmenningu. Sjá nánar

NON-PROFESSIONAL SUMMER PROGRAMS
A) Einstaklingskennsla (eða smáhópur). Unnið er með matseðla að óskum hvers og einnig eru í boði menningartengdar ferðir. Lengd námskeiðs er 1 dagur eða fleiri.

B) Hópkennsla í eina til tvær vikur þar sem boðið er upp á 12 ólik þemu. Lagt er upp með 7 (14) tíma í hóp og 5 (10) tíma einkakennslu. Einnig er hægt að taka tíma í ítölsku. Sjá nánar


Lingo - Málamiðlun Bankastræti 5 • 101 Reykjavík • Sími 562 2220 • info@lingo.is