NÁMSLÁN
Alþjóðlegir fagskólar sem eru boði hjá Lingo-Málamiðlun eru lánshæfir samkvæmt úthlutunarreglum Lánasjóðs Íslenskra Námsmanna (LÍN).

Reglur LÍN kveða á um að nemar í grunnháskólanámi eigi rétt á láni fyrir skólagjöldum og uppihaldi í allt að 7 annir, eða sem samsvarar þriggja og hálfs árs námi.

Þetta felur í sér að undirbúningsnámskeið í tungumálum í 8 vikur eða lengur, er lánshæft bæði vegna framfærslu og námsgjalda. Við hvetjum því alla þá sem hyggja á nám erlendis að nýta sér þennan rétt, þar sem kunnátta í tungumálinu og þekking á menningu viðkomandi lands auðveldar aðlögun.

Mikilvægt er að sækja um tímanlega ef ætlunin er að nýta þennan möguleika og leggja þarf fram staðfestingu á skráningu í málanámið, auk staðfestingar á skráningu í fagskólann, þar sem fram kemur að skráningargjald “registration fee” hafi verið greitt, ásamt kvittunum fyrir greiðslu.

Ekki er lánað fyrir tungumálanámi sem varir skemur en 8 vikur.

Allar nánari upplýsingar varðandi námslán eru veittar hjá LÍN Borgartúni 21 • 101 Reykjavík • Sími 560400 • Vefsvæði www.lin.is

Vakin er athygli á Evrópska sjúkratryggingakortinu, en nánari upplýsingar um það eru á vef Tryggingarstofnunar www.tr.is


Lingo - MálamiðlunBankastræti 5 • 101 Reykjavík • Sími 562 2220 • info@lingo.is