Umsokn
   

SUMARNÁMSKEIÐ - STUTT NÁMSKEIÐ
Fatahönnun | Skartgripahönnun | Grafísk hönnun | Markaðsfræði | Tískuljósmyndun | Ljósahönnun | Innanhúss- og verslunarhönnun | Hönnun almenningssvæða | Húsgagnahönnun | Sýningahönnun | Viðburðastjórnun | Teiknun og málun | Listasaga | Skapandi skrif | Matarlist | Vinmenning | Sönglist | Leiklist


Istituto Europeo di Design (IED)
býður sumarnámskeið fyrir hönnunarnema, fagfólk og sérfræðinga í júní- og júlímánuði. Þessi námskeið eru á sviði tísku, hönnunar eða sjónrænna lista.

Hvort heldur fólk er styttra eða lengra komið á starfsferli sínum, þá er þetta fullkomin lausn fyrir þá, sem vilja sameina sumarfrí sitt, viðhalda fagmennsku og ná sér í hvetjandi nýja reynslu. Námskeiðin eru haldin á ensku á Ítalíu, en á ensku eða spænsku á Spáni og standa í 3-4 vikur. SJÁ NÁNAR


Florence University of the Arts (FUA)
Skólinn er staðsettur miðsvæðis í Flórens í nýuppgerðu húsnæði þar sem aðstaða er öll eins og best verður á kosið. Hjá FUA er lögð áhersla á að skapa framúrskarandi umgjörð og aðstæður fyrir nemendur í hönnun og listum, þar sem þeim gefst tækifæri til að rækta og þróa hæfileika sína. Námið fer að mestu fram á ensku.

Skólinn leiðbeinir og veitir aðstoð við húsnæðisleit. Í boði eru studio íbúðir, auk íbúða sem hægt er að deila með öðrum nemum, svo og heimagisting hjá fjölskyldum. SJÁ NÁNAR

Back to top


University of the Arts Londom (UAL)
UAL býður fjölbreytt nám á sviði hönnunar og lista. Skólinn, sem áður var þekktur undir nafninu The London Institute, er einn af fimm stærstu háskólum sinnar tegundar í Evrópu. University of the Arts London er byggður upp af sex heimsþekktum lista- og hönnunarskólum, sem hafa aðsetur víðsvegar um London og bjóða mikið úrval lengri og styttri námsleiða á sviði hönnunar og lista, sjónlista, tísku, margmiðlunar, markaðssamskipta og sviðslista.

Í boði er mikið úrval stuttra námskeiða; helgarnámskeið, vikunámskeið, eða lengri. Nánari upplýsingar eru undir nafni hvers skóla hér að neðan.

Camberwell College of Arts NÁNAR:
Central Saint Martins College of Art and Design NÁNAR:
Chelsea College of Art and Design NÁNAR:
London College of Communication NÁNAR:
London College of Fashion NÁNAR:
Wimbledon College of Art NÁNAR:

Back to top

THE ARTS PLUS ENGLISH PROGRAM – NEW YORK CITY

Enska og sviðslistir
Hjá Rennert Bilingual eru í boði stutt námskeið í sviðslistum og kvikmyndagerð sem hægt er að bæta við fjögurra vikna enskunámskeið. Enskukennslan er 15 stundir á viku og síðan er hægt að bæta við námskeiðum í sviðslistum, til dæmis: BodiBalance Dance • Steps Dance Experience • Fashion Summer Intensive • Music • Acting • Short-term Acting. SJÁ NÁNAR:




Starfsmenntasjóðir
Við mælum með að þú kannir rétt þinn til styrks hjá starfsmenntasjóði stéttarfélags þíns, en hann gæti numið allt að helmingi námskeiðskostnaðar.

Hér fyrir neðan eru nokkrar slóðir með nánari upplýsingum.
www.landsmennt.is, www.fis.is, www.starfsafl.is, www.smennt.is



Lingo - Málamiðlun Bankastræti 5 • 101 Reykjavík • Sími 562 2220 • info@lingo.is