Tungumálapróf
Skólagjaldalán
 
 
Lingó-málamiðlun býður lausnir sem auðvelda einstaklingum og fyrirtækjum að taka þátt í alþjóðasamfélaginu; námskeið á sviði tungumála og menningarlæsis, auk náms á háskólastigi við alþjóðlega fagskóla.

Lingó-málamiðlun
er í samstarfi við á fjórða tug viðurkenndra fyrirtækja í 10 þjóðlöndum. Sameiginlegt þessum aðilum er viðurkennd úrvals þjónusta, fagmennska og áratuga þekking og reynsla.

Lingó-málamiðlun
er ráðgjafar- og þjónustufyrirtæki sem leggur áherslu á persónulega þjónustu og markmið okkar er að gera betur en búast mátti við.

Tungumálanámskeið fyrir vinnandi fólk.

Alþjóðavæðingin ýtir undir nauðsyn þess að starfsfólk íslenskra fyrirtækja og stofnana hafi gott vald á erlendum tungumálum, enda vitað að færni í tungumálum skapar forskot í samkeppni. Þekking á tungumáli eykur einnig skilning á menningu og byggir brýr á milli fólks. Námskeiðin eru byggð upp þannig, að hægt sé að ná miklum árangri á stuttum tíma.
Þjálfunin er aðlöguð málakunnáttu hvers og eins og byggð upp út frá reynslusviði hans. Hægt er að velja um hópnámskeið, samsett námskeið, eða einkaþjálfun. 

Hagnýtt málanám fyrir menntskælinga og háskólanema.
Hagnýt námskeið þar sem lögð er áhersla á talþjálfun, aukinn orðaforða, skilning í menningarmun, svo og að efla sjálfstraust og hæfileika til að leysa úr óvæntum aðstæðum. Námskeiðin eru sniðin að verðandi háskólanemum svo og þeim sem stunda háskólanám eða hafa nýlega lokið námi t.d. í viðskiptafræði og lögfræði.

Nám í hönnun, miðlun og listum.
Í alþjóðlegum fagskólum koma nemendur víða að úr heiminum og til verður fjölþjóðlegt umhverfi sem tengist nýjungum og þróun í menntun og er jafnframt í raunhæfum tengslum við atvinnulífið. Þeim sem stunda nám í slíkum skólum gefast þannig góðir möguleikar á að komast áfram á alþjóðlegum vettvangi.

TUNGUMÁLANÁM
Stjórnendur (nánar)
Almenn námskeið (nánar)
Fagmenn og sérfræðingar (nánar)
Háskólanemar (nánar)
ALÞJÓÐLEGIR HÖNNUNAR OG LISTASKÓLAR

Þekking er mikilvæg auðlind, sem er ólík flestum auðlindum öðrum að því leyti – að hún minnkar ekki við notkun – heldur má þvert á móti má segja að notkunin leiði til þess að þekkingin aukist.


Bankastræti 5 • 101 Reykjavík • Sími 562 2220 • Fax 568 2040info@lingo.is