ENSKA ER ESPERANTO
okkar tíma, tungumál sem flestir geta nýtt sér og er mest notaða tungumálið í viðskiptum í heiminum. Enska á sér langa og merkilega sögu sem hefur þróast í mörg afbrigði í gegnum aldirnar. Menningarheimar þeirra þjóða, sem hafa ensku að móðurmáli eru mismunandi og endurspeglar tungumálið þennan mun. Við val á stað til enskunáms skiptir máli að læra tungumálið í þeirri menningu sem þú telur áhugaverðasta. Lingo-Málamiðlun býður enskunámskeið ýmsum löndum; Englandi, Skotlandi, Írlandi, Bandaríkjunum og Kanada.

STJÓRNENDANÁMSKEIÐ - EXECUTIVES
Stjórnarformenn, forstjórar, framkvæmdastjórar, sendiherrar, ráðherrar og þingmenn. Það geta allir bætt við tungumálakunnáttuna. Lingo-Málamiðlun er með samninga við viðurkennd fræðslusetur og málaskóla í Bretlandi og Bandaríkjunum, sem sérhæfa sig í stjórnendafræðslu. Þessir aðilar bjóða umhverfi við hæfi "Executive Centres" sem eru búin öllum nútíma þægindum. Sjá nánar

SÉRHÆFT MÁLANÁM - PROFESSIONALS
Lyfjafræðingar, lögfræðingar, bankamenn, hjúkrunarfræðingar, fréttamenn, inn- og útflutningsfræðingar og aðrir fagmenn í ýmsum greinum geta líka bætt við enskukunnáttu sína. Á sama hátt og í stjórnendafræðslu bjóða samstarfsaðilar okkar sérhæfð námskeið sem eru sniðin að þörfum atvinnulífsins og umhverfi við hæfi. Hér gefst einnig einstakt tækifæri til að hitta "kollega" í sambærilegum störfum víða að úr heiminum og þjálfa tungumálið áfram utan kennslustofunnar. Sjá nánar

ALMENN NÁMSKEIÐ - GENERAL
Málanám fyrir alla sem vilja, eða telja sig þurfa að bæta almenna málakunnáttu sína. Almennu námskeiðin eru ætluð þeim sem vilja læra tungumálið á þægilegum hraða og njóta menningar lands á sama tíma. Nemendum er raðað saman eftir kunnáttu. Lögð er áhersla á að bæta þekkingu í málfræði og auka hæfni nemenda í hlustun, ritun, lestri og talmáli. Sjá nánar

SÉRHÆFÐ NÁMSKEIÐ FYRIR KENNARA - TEACHERS
Fáir þurfa eins mikið á því að halda og kennarar að viðhalda kunnáttu sinni og endurnýja kennslutækni. Kennarar geta leitað nýrra leiða, fengið nýjar hugmyndir og deilt reynslu sinni með öðrum kennurum. Fagleg þróun í nýju og hvetjandi umhverfi þar sem neminn er í aðalhlutverki styrkir sjálfsmyndina, eykur víðsýni og síðast en ekki síst - eflir máltilfinninguna. Sjá nánar


Lingo - Málamiðlun Bankastræti 5 • 101 Reykjavík • Sími 562 2220 • info@lingo.is