STJÓRNENDANÁMSKEIÐ
Enskunámskeið fyrir stjórnendur eru byggð upp þannig að hægt sé að ná miklum árangri á stuttum tíma. Þau eru því krefjandi, hagnýt og markviss. Leiðbeinendur búa yfir mikilli reynslu og námið er aðlagað að nútíma viðskiptum. Þátttakendur fá t.d. þjálfun í sérhæfðu tungutaki á sínu sviði, tækifæri til að halda kynningar og standa í samningaviðræðum. Ennfremur gefast möguleikar til að hitta fólk í sambærilegum störfum víða að úr heiminum.
Stjórnendanámskeið eru aðlöguð tungumálakunnáttu hvers og eins og byggð upp út frá reynslusviði viðkomandi. Litið er til sérstakra þarfa þátttakenda og boðið upp á umhverfi sem er bæði þægileg, en um leið hvetjandi.

Einkakennsla gefur möguleika á að vinna almennt með tungumálið og einnig með sérhæfðan orðaforða og ákveðin málefni. Litið er til sérstakra óska og þarfa þátttakenda og boðið upp á umhverfi sem er þægilegt, en um leið hvetjandi. Samsetning námskeiðsins er því alfarið að vali hvers og eins. Hægt er að koma með óskir um einkaþjálfun á hvaða sviði sem er.


RICHARD LEWIS COMMUNICATIONS
Richard Lewis Communications var stofnað árið 1990 og býður sérsniðnar lausnir á sviði tungumála og menningarlæsis með það að markmiði að gera fólk og fyrirtæki hæfari til starfa í alþjóðlegu umhverfi.
Helsti styrkleiki Richard Lewis umfram samkeppnisaðila er víðtæk þekking á menningarskiptum (cross-culture) og meðal viðskiptavina eru fjölmörg heimsþekkt alþjóðleg fyrirtæki, ráðuneyti, viðskiptaskólar, stjórnendaráðgjafar og einstaklingar.
Þjálfunin byggist á einstaklingskennslu, en viðskiptavinum er einnig boðið að taka þátt í hópvinnu, þegar það hentar óskum þeirra um sérstaka þjálfun, til dæmis á sviði funda, kynninga eða samningaviðræðna.
Þannig er hægt að nýta saman tvær góðar þjálfunaraðferðir.

Riversdown House
Riversdown House er sérhannað þjálfunarsetur á herragarði á Suður-Englandi, í nágrenni Winchester og aðeins 1 klst. akstur frá Heathrow.
Riversdown er staður með sögu (frá 14. öld), en allt húsnæði og aðbúnaður hefur verið færður til nútímahorfs. Þetta er kjörinn staður til þjálfunar fjarri ys og þys hins hefðbundna viðskiptaheims.
Fjöldi þátttakenda hverju sinni er takmarkaður við 12-16 manns og innifalið í námskeiðsgjaldi er eftirfarandi: Þarfagreining og stöðumat fyrir og eftir námskeið • Þjálfun frá mánudegi til föstudags • Gisting í sérbýli með baðherbergi • Fullt fæði • Internet tenging • Frístundadagskrá og kynningar • 9 holu golfvöllur • Ferðir til og frá flugvelli. Sjá nánar:

back to top


LONDON SCHOOL OF ENGLISH
London School of English er elsti viðurkenndi málaskóli í heimi, stofnaður árið 1912. Þetta er góður skóli fyrir fólk gerir kröfur, vill ná góðum árangri og bæta tungumálakunnátu sína. Stefna London School of English er að gera betur en búast mætti við. Viðskipta- og sérfræðinámskeiðin fara fram í Holland Park Gardens, sem er sérhæft fræðslusetur fyrir stjórnendur og er vel staðsett í góðu hverfi nálægt miðborg Lundúna.

ALÞJÓÐAVIÐSKIPTI ALÞJÓÐLEGIR FUNDIR GISTING

Námskeið hjá London School of English er ekkert venjulegt málanám. Það byggist á langri reynslu í alþjóðlegu umhverfi og gefur þátttakendum færi á að þróa kunnáttu og samskiptahæfileika á allt annan hátt en fólk á að venjast. Unnið er í litlum hóp, með fólki sem kemur víða að og áhersla er lögð á að sinna skilgreindum þörfum hvers og eins.

back to top


THE CAMBRIDGE ACADEMY OF ENGLISH
Cambridge Academy of English rekur enskuskóla (þjálfunarsetur) fyrir fagmenn og sérfræðinga og býður úrval enskunámskeiða, sem eru sérstaklega miðuð að starfsgrein viðkomandi. Helsti styrkleiki CAE er þekking og reynsla í þjálfun lögmanna, laganema og löglærðra.

Fræðslusetur CAE er staðsett í úthverfi Cambridge og hámarksfjöldi sem dvelur þar samtímis er 19 manns. Meðalaldur er 35-40 ára og lágmarksaldur 25 ár. Aðbúnaður og umhverfi til enskunáms er í faglegt og samhliða þjálfuninni kynnast þátttakendur einnig sérfræðingum og fagmönnum frá fjölda þjóðlanda, auk þess sem í boði eru heimsóknir til fyrirtækja og stofnana.
Sjá nánar>>


back to top

ACCENT INTERNATIONAL
Accent var stofnað árið 1988 sem sérhæft ráðgjafar og þjálfunarfyrirtæki á sviði tungumálanáms. Námskeiðin hjá Accent eru fyrir stjórnendur og sérfræðinga sem vilja ná árangri fljótt og vel og bæta enskukunnáttuna á sínu sérsviði. Notuð er nútímatækni, persónuleg aðferðafræði og námsefnið tengt þörfum hvers og eins. Aldrei eru fleiri en 25 stjórnendur eða sérfræðingar samtímis í skólanum og oft aðeins 10-12. Leiðbeinendur eru allir með langa reynslu af kennslu í viðskiptaensku og sérhæfðri ensku.


Gisting

Accent mælir með heimagistingu hjá enskum fjölskyldum sem bjóða gistingu í hæsta gæðaflokki. Helsti kosturinn við heimagistingu er að vera boðinn velkominn á enskt heimili, sem þýðir fulla aðlögun að enskumælandi umhverfi þar sem tækifæri gefst til að halda áfram að þjálfa enskuna og ná þannig betri árangri. Sjá nánar >> Þeir sem vilja frekar búa á hóteli bjóðast ýmsir möguleikar og gæðaflokkar. Einnig er hægt að taka fjölskylduna með og nýta sumarfríið að hluta til málanáms. “Cottage” Sjá nánar >>

Staðsetning
Accent hefur byggt upp mjög góða aðstöðu í Bicton College á suðurströnd Devon, einu fegursta héraði Englands. Allur aðbúnaður er fyrsta flokks og kennslustofurnar bjartar og rúmgóðar með útsýni til sjávar, þar sem þátttakendur geta einbeitt sér að náminu í fallegu og þægilegu umhverfi. Ferðatími milli Exeter og Hethrow er 3 tímar. Sjá nánar um Devon >>

back to top



TORQUAY INTERNATIONAL SCHOOL
TIS hefur allt frá stofnun árið 1972 verið leiðandi í almennri enskukennslu sem og kennslu fyrir sérfræðinga og stjórnendur. TIS er málaskóli sem leggur áherslu á persónulega þjónustu í þægilegu umhverfi, með það að markmiði að veita hágæða kennslu, þar sem allir geta náð hámarks árangri. TIS býður úrval námskeiða fyrir almenna starfsmenn, sérfræðinga og námsmenn sem vilja bæta enskukunnáttu sína.

TIS hefur á að skipa úrvals kennurum með mikla og víðtæka reynslu og hafa flestir þeirra unnið hjá skólanum í áratugi. Til viðbótar sérhæfðri menntun sem enskukennarar fyrir útlendinga, hafa margir þeirra einnig persónulega reynslu og menntun í ýmsum greinum viðskipta. Þetta eykur hæfni þeirra til að veita hverjum og einum sérhæfða ráðgjöf á ólíkum sviðum og veitir innsýn og skilning á því sem brennur á áhugasömum þátttakendum.


Torquay er fallegur 60.000 manna strandbær á Suð-vesturströnd Englands. Náttúrufegurð Devon héraðs er rómuð, óendanlegar hvítar sandstendur, fallegar sveitir og lítil sjávarþorp. Ferðatími milli Hethrow og Torquay er 3,5 klst. Sjá nánar >>


back to top


Lingo - Málamiðlun Bankastræti 5 • 101 Reykjavík • Sími 562 2220 • info@lingo.is