FRÖNSKUNÁMSKEIÐ. Franska hefur löngum verið eitt af höfuðtungumálum alþjóðasamskipta, enda hafa menning og listir Frakka haft mikil áhrif á sögu Evrópu. Góð frönskukunnátta kemur sér því einkar vel í nútímasamfélagi, eykur atvinnutækifæri og víkkar sjóndeildarhringinn. Franska hefur verið kennd á Íslandi í áraraðir, en það er ómetanlegt að læra tungumálið í frönskumælandi umhverfi hjá viðurkenndum skóla. Í boði er fjölbreytt úrval námskeiða og hægt er að velja um mismunandi staði í Frakklandi og Kanada, sem allir hafa sína sértöku menningu.


CENTRE INTERNATIONAL D'ANTIBES
Málaskólinn CIA í Antiebes sem var stofnaður árið 1985 er einn virtasti skólinn á sínu sviði í Frakklandi. CIA er sérlega vinsæll hjá ungu fólki sem vill kynnast “Frönsku Ríverunni” og fjölmargar skemmti- og skoðunarferðir eru í boði. Hjá CIA er lögð áhersla á einstaklingsmiðað nám, jákvæða hvatningu og húsnæði og aðstaða er eins og best gerist. Í boði er góð gisting meðal annars á heimavist skólans. Hjá CIA eru tiltölulega fáir nemar saman í hóp þannig að starfsfólk og kennarar skólans geti sinnt hverjum og einum. Námsgögn eru sérstaklega miðuð að erlendum nemum sem stunda frönskunám og eru bæði í formi bóka og tengingar við franskan veruleika. Námsmat fer fram í lok dvalar og þannig reynt að tryggja viðvarandi góða þjónustu.

Í boði er almennt frönskunám í 2-7 vikur sem og lengri námskeið (8 vikur eða lengur). Einnig býðst nemum að vera í starfsþjálfun innan skólans og fá að launum frönskukennslu, húsnæði og einhverja vasapeninga.


EINNIG ERU Í BOÐI SÉRSTÖK NÁMSKEIÐ UM FRANSKA MENNINGU


INSTITUTE LINGUISTIQUE ADENET (ILA) - MONTPELLIER
Ef þú hefur áhuga á að bæta frönskukunnáttu þína, þá bjóðum við frönskunámskeið og einstaka upplifun í Suður-Frakklandi við Miðjarðarhafið. ILA er klassískur frönskuskóli með aðsetur í gamla borgarhluta Montpellier. Húsnæði skólans er nýuppgert og hentar sérstaklega vel fyrir starfsemina, með 20 vel búnum kennslustofum, þráðlausum tölvutengingum og fríum netaðgangi.

Hjá ILA er lögð áhersla á viðurkennt og vandað frönskunám fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna og í boði eru námskeið á flestum kennslustigum. Kennt er í litlum hóp (3-10 nemar), þannig að hver og einn fær nauðsynlega athygli. Kennarar ILA eru sérstaklega menntaðir og þjálfaðir til frönskukennslu fyrir útlendinga og starfsfólk skólans leggur sig fram um að gera dvölina ánægjulega.

Go to top

INSTITUT PARISIEN - PARÍS
Institut Parisien tók til starfa árið 1988 og er viðurkenndur málaskóli sem býður faglega frönskukennslu. Hvort sem þú hefur áhuga á að nema frönsku þér til ánægju, eða bæta við faglega þekkingu þína geturðu treyst því að Institute Parisien býður mjög góða aðstöðu. Sérstök áhersla er lögð á gæði, enda meginmarkmið að nemar bæti verulega kunnáttu sína. Einnig er gert í því að nemar kynnist franskri menningu, Parísarborg og ekki síst Frökkum sjálfum, enda bætir það verulega árangur námskeiðanna.

Go to top


ELFE - PARÍS
Málaskólinn ELFE var stofnaður árið 1984 og sérhæfir sig í námskeiðum fyrir háskólanema, stjórnendur og sérfræðinga sem vilja læra mikið á stuttum tíma. ELFE hefur á sér gott orð og fyrirtæki eins og ABB, Accentura, Siemens, Ericson ofl. nýta sér þjónustu skólans.

ELFE skólinn er í 19. aldar húsi miðsvæðis í París, á grænu svæði sem liggur vel við jarðlestartengingu (Place de Clichy). Boðið er upp á umhverfi sem er í senn nútímalegt, þægilegt og hvetjandi og kennara með mikla reynslu.

Þrjár tegundir námskeiða eru í boði: Smáhópur (3-6 nemar) • Sérhæfð námskeið (sérsniðin) • Samsett námskeið (smáhópur og einkakennsla). Námskeiðin eru einstaklingsmiðuð og sérstök áhersla lögð á að vinna úr upplýsingum um óskir og þarfir hvers og eins, áður en námið hefst.
Fyrir þá sem hafa áhuga á franskri menningu eru í boði síðdegisnámskeið í franskri matargerð, menningu og vínsmökkun.

Gisting: Heimagisting eða íbúðahótel. Lágmarksaldur nema er 18 ár.


Gisting:
Gisting þarf að uppfylla ákveðin gæði og hverjar sem óskir þínar eru gerum við okkar besta til að finna húsnæði við hæfi. Ýmsir gistimöguleikar eru í boði, svo sem heimagisting, gisting á heimavist, í íbúð, íbúðarhótel eða hótel.

Námskeið
Í boði eru almenn námskeið "Standard Course" (20 stundir) • Samþjöppuð "Intensive Course" (30 stundir) • Samsett "Standard+Business French" eða "Standard+One-to-One Course" (almennt og einkakennsla) • Undirbúningsnámskeið fyrir alþjóðleg tungumálapróf • Einkakennsla.


Lingo - Málamiðlun Bankastræti 5 • 101 Reykjavík • Sími 562 2220 • info@lingo.is