![]() |
|||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||
|
MÁLASKÓLI
- ALMENN NÁMSKEIÐ THE CAMBRIDGE ACADEMY OF ENGLISH The Cambridge Academy of English (CEA) er fjölþjóðlegt tungumálasetur, sem býður góða aðstöðu til enskunáms og lögð er áhersla á að nemendur geti náð árangri. CAE er ekki keðjuskóli", sem þýðir að þú færð persónulega þjónustu og þér býðst meiri sveigjanleiki í náminu. Námskeið eru í boði allt árið, nema í tvær til þrjár vikur um jól. Hámark 12 nemar í bekk, valin blanda þjóðerna, 21+ kennslustundir á viku, regluleg viðtöl við kennara og ókeypis afþreying. CAE er staðsett í góðu hverfi, í hinni heimsþekktu háskólaborg Cambridge, hvar alltaf er eitthvað um að vera; tónleikar, kvikmynda- og leiklistarhátíðir, auk aragrúa af galleríum, krám, veitingahúsum, íþróttaaðstöðu og ýmsu öðru sem gerir lífið skemmtilegt. CAE er eini viðurkenndi málaskólinn í Cambridge til kennslu á "English for Law". back to top WIMBLEDON SCHOOL OF ENGLISH Wimbledon School of English er einn af elstu og virtustu enskuskólum í Englandi og er staðsettur miðsvæðis í Wimbledon hverfinu í vesturhluta London. Skólinn er í eigin húsnæði sem er glæsileg bygging frá Viktoríutímanum, með stórum og fallegum garði allt í kring. Persónuleg þjónusta er einkenni Wimbledon skólans, kennslan er metnaðarfull og kröfur eru gerðar til hvers og eins nema þannig að námið nýtist sem best. Wimbledon Village er - bær í borg - þar sem finna má frægustu tennisvelli í heimi, kaffi- og veitingahús á hverju horni, verslanir, kvikmyndahús, leikhús að ógleymdum pöbbunum. SJÁ NÁNAR: back to top TORQUAY INTERNATIONAL SCHOOL TIS hefur allt frá stofnun árið 1972 verið leiðandi í almennri enskukennslu sem og kennslu fyrir sérfræðinga og stjórnendur. TIS er málaskóli sem leggur áherslu á persónulega þjónustu í þægilegu umhverfi, með það að markmiði að veita hágæða kennslu, þar sem allir geta náð hámarks árangri. TIS býður úrval námskeiða fyrir almenna starfsmenn, sérfræðinga og námsmenn sem vilja bæta enskukunnáttu sína. TIS hefur á að skipa úrvals kennurum með mikla og víðtæka reynslu og hafa flestir þeirra unnið hjá skólanum í áratugi. Til viðbótar sérhæfðri menntun sem enskukennarar fyrir útlendinga, hafa margir þeirra einnig persónulega reynslu og menntun í ýmsum greinum viðskipta. Þetta eykur hæfni þeirra til að veita hverjum og einum sérhæfða ráðgjöf á ólíkum sviðum og veitir innsýn og skilning á því sem brennur á áhugasömum þátttakendum. Torquay er fallegur 60.000 manna strandbær á Suð-vesturströnd Englands. Náttúrufegurð Devon héraðs er rómuð, óendanlegar hvítar sandstendur, fallegar sveitir og lítil sjávarþorp. Ferðatími milli Hethrow flugvallar og Torquay er 3,5 klst. Sjá nánar >> back to top LANGUAGE SPECIALIST INTERNATIONAL LSI sérhæfir sig í framsæknum kennsluaðferðum og hefur verið valinn einn af "Top 10" enskuskólum í Bretlandi. Áhersla er lögð á enskukennslu fyrir stjórnendur fyrirtækja, svo og millistjórnendur innan fjármála-, viðskipta- og tæknigreina. LSI býður einnig úrvals enskukennslu fyrir almenna starfsmenn og námsmenn. Skólinn er í eigin húsnæði á einum besta stað í Portsmouth, rétt við aðal verslunar- og veitingahúsahverfið og í göngufæri frá ströndinni. Portsmouth er gamall, fallegur strandbær á suðurströnd Englands, mitt á milli Brighton og Bournemouth. Borgin býður upp á fjölbreytta möguleika til skemmtana og afþreyingar á borð við tennis, golf, fótbolta, seglbretti og siglingar. Í yfir 800 ár hefur Portsmouth verið miðstöð verslunar- og siglinga, aðal flotastöð Breta hefur þar aðstöðu og þar er að finna helstu minjar um sögu siglinga í heiminum. Portsmouth er vinsæll ferðamannastaður jafnt sumar sem vetur. Sigling til Isle of Wight tekur 15 mínútur og lestarferð til London rúman klukkutíma. back to top LONDON SCHOOL OF ENGLISH London School of English er elsti viðurkenndi málaskóli í heimi, stofnaður árið 1912. Þetta er góður skóli fyrir fólk gerir kröfur og vill ná góðum árangri og bæta tungumálakunnátu sína. Stefna London School of English er að gera betur en búast mætti við. Almennu námskeiðin eru haldin í Westcroft Square sem er nútímalegt þjálfunarsetur, vel staðsett og aðeins 20 mín. í neðanjarðalest til miðborg Lundúna. Flestir nemar eru á aldrinum 25-35 ára og koma víða að úr heiminum. Fyrrri part dags er lögð áhersla á að efla almenna málakunnáttu, en seinni partinn er lögð áhersla á að mismunandi svið að vali hvers og eins og til dæmis viðskiptaensku, framburðaræfingar, málfræði eða almenna tjáningu. Áherslan er alltaf á að læra á praktískan hátt. Ekki er kennt eftir hádegi á miðvikudögum svo hægt sé að njóta þess sem London hefur upp á að bjóða. back to top THE ENGLISH LANGUAGE CENTER The English Language Center er með aðsetur í Boston, og Los Angeles. Skólinn var stofnaður árið 1978, býður fjölbreytt úrval enskunámskeiða og er einn af leiðandi aðilum á sínu sviði í Bandaríkjunum. Kennarar og leiðbeinendur eru allir með hákólapróf og langa reynslu af kennslu á sínu sviði. Fagleg kunnátta og persónuleg nálgun setur ELC feti framar öðrum.
RENNERT BILINGUAL Skólinn var stofnaður árið 1973 af César Rennert með það markmið að reka hágæða málaskóla þar sem kennt er í litlum hópum samkvæmt viðurkenndum aðferðum og meiri áhersla er lögð á talað mál en málfræði. Rennert Bilingual starfar enn í dag samkvæmt þessum markmiðum og er vel staðsettur á Manhattan eyju í New York City, stutt frá Grand Central Terminal.
Enskunámskeið fyrir háskólanema Þetta námskeið er kjörið fyrir háskólanema og sérstaklega sniðið að alþjóðlegum nemandahópi sem hyggjast stunda háskólanám í BNA. Morguntímar eru nýttir í að æfa hlustun og orðaforða, lestur fræðigreina, munnlegar kynningar og menningarlæsi. Síðdegis er farið yfir prófundirbúning og rannsóknir og þannig unnið að því að byggja upp hæfileika til að skilja og tala tungumálið með góðum árangri í háskólaumhverfi. Lengd námskeiða er 12 vikur og kennt í 28 stundir á viku. back to top EMERALD CULTURAL INSTITUTE Emerald Cultural Institute er enskuskóli í hæsta gæðaflokki þar sem fagmennska er í hávegum höfð á öllum sviðum. Höfuðstöðvar Emerald eru við Palmerson Park í gömlum herragarði" sem gerður hefur verið upp með kröfur nútímans í huga. Allur aðbúnaður er góður, kennslustofur stórar og bjartar, vel búin tölvuver og kaffitería í sérflokki. Hagstætt verðlag gerir enskunám á Írlandi að góðum kosti.
Dublin er talin einhver skemmtilegasta borg í Evrópu - nógu stór og nógu lítil - heillandi gleði- og menningarborg. En Írar eru ekki einungis þekktir fyrir glaðværð og gestrisni, því fáar þjóðir hafa alið af sér fleiri heimsfræg skáld, tónlistarmenn og annað listafólk. Írland er hrífandi land með einstakri náttúrufegurð og hreinum ströndum. back to top Lingo - Málamiðlun Bankastræti 5 101 Reykjavík Sími 562 2220 info@lingo.is |