![]() |
|||
|
||||||||||||||||
|
ÍTÖLSKUNÁMSKEIÐ.
Áhugi á ítölsku
hefur aukist verulega í seinni tíð, ekki síst
vegna bættrar menntunar og aðgengis að ítölsku
efni. Klassísk menningarhefð, blómstrandi listalíf
og vaxandi samskipti við Ítalíu gera þekkingu
á þessu tungumáli ómetanlega í framtíðinni.
Á Ítalíu getur þú kynnst málinu
í fyrsta sinn, bætt við fyrri þekkingu, eða
undirbúið þig undir háskólanám og
/ eða atvinnu. LINGUAVIVA /LINGUADUA Í boði eru ítölskunámskeið í tveim borgum: Florence, sem er þekkt fyrir vingjarnleika og skemmtilegt umhverfi og Milano, sem er helsta viðskiptaborg Ítalíu, en ekki síður borg menningar, tísku, hönnunar og tækni. Linguaviva er leiðandi aðili í tungumálakennslu á Ítalíu og býður úrval einstaklingsmiðaðra námskeiða. Í boði eru almenn námskeið, viðskiptanámskeið, námskeið fyrir háskólanema, auk námskeiða þar sem fer saman ítölskukennsla og til dæmis námskeið í listum eða ítalskri matarlist. Sjá nánar: Hjá Linguaviva er lögð áhersla á góða þjónustu þannig að hver og einn fái notið sín og fái kennslu við hæfi. Linguaviva er með leyfi Ítalska Menntamálaráðuneytis til tungumála- og menningarmálakennslu fyrir erlendra nema. DILIT Dilit málaskólinn hefur starfað í Róm frá árinu 1974. Hann er vel staðsettur í huggulegu hverfi skammt frá aðaljárnbrautarstöð borgarinnar og því afar vel í borg settur, ef svo má að orði komast, en Róm er sem kunnugt er byggð upp úr mörgum sjálfstæðum borgarhlutum. Dilit var brautryðjandi í breytingum á aðferðafræði við Ítölskukennslu og beitir því samskiptamiðuðum aðferðum, þar sem lögð er áhersla á að kennslan sé í samhljómi við ítalskan veruleika og menningarheim. Vikulega eru í boði fyrirlestrar (utan kennslutíma) þar sem rætt er um eftirfarandi málefni: Ítalskar bókmenntir, sögu, svæði og borgir Ítalíu, ítalska kvikmyndagerð, matargerð eða víngerð. Dilit málaskólinn er viðurkenndur af Ítalska Menntamálaráðuneytinu. Auk hefðbundinnar Ítölskukennslu býður Dilit upp á eftirtalin námskeið: Ítölsk matargerð Róm fyrir 50 ára og eldri Viðskiptaítalska og ekki síst Lista- og menningarnámskeið. DANTE ALIGHIERI Dante Alighieri er alþjóðlegt setur fyrir tungumálanám, listir, matarlist og menningu í miðaldaborginni Siena á Ítalíu. Skólinn var stofnaður árið 1979 og hefur frá þeim tíma tekið við nemendum víðs vegar að úr heiminum. Ítölsk matarlist Hefðir og þróun í ítalskri matargerð er flestum vel kunn og Siena Lingue býður ýmiss áhugaverð námskeið, bæði fyrir áhugamenn og fagmenn. Skólinn er vel búinn tækjum og aðstaða hin besta til kennslu. Námskeiðin byggja á þema tengdu árstíðunum þannig að sífellt er unnið með gott hráefni. Kennt er á ensku eða ítölsku og þýtt á ensku og lengd námskeiða er ein vika eða fleiri. Farið er í gegnum fimm rétta máltíð, allt frá vali á hráefni til þess að elda réttina og síðan njóta þeirra í lokin í fallegum borðsal með útsýni yfir hina fögru borg Siena í Tuscany héraði. Um borgina Siena Siena er borg andstæðna. Hér er að finna miðaldafjársjóði í byggingum og listum og síðan nútíma verslanir og aðstöðu. Borgin er friðsæl, enda bílaumferð vel takmörkuð, þannig að hægt er að ganga um þröng stræti og gotnesk torg og njóta borgarinnar. Sjá nánar >> Efst
á síðu
BABILONIA Gisting: Gisting þarf að uppfylla ákveðin gæði og hverjar sem óskir þínar eru gerum við okkar besta til að finna húsnæði við hæfi. Ýmsir gistimöguleikar eru í boði, svo sem heimagisting, gisting á heimavist, í íbúð, íbúðarhótel eða hótel. Námskeið Í boði eru almenn námskeið "Standard Course" (20 stundir) Samþjöppuð "Intensive Course" (30 stundir) Samsett "Standard+Business" eða "Standard+One-to-One Course" (almennt og einkakennsla) Undirbúningsnámskeið fyrir alþjóðleg tungumálapróf Einkakennsla. Lingo - Málamiðlun Bankastræti 5 101 Reykjavík Sími 562 2220 info@lingo.is |
![]() ![]() ![]() |
|||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||