![]() |
|
|
|||||||||||||||||||||||
|
SÉRHÆFT
MÁLANÁM LONDON SCHOOL OF ENGLISH London School of English er elsti viðurkenndi málaskóli í heimi, stofnaður árið 1912. Þetta er góður enskuskóli fyrir fólk gerir kröfur, vill ná góðum árangri og bæta tungumálakunnátu sína. Stefna London School of English er að gera betur en búast mætti við. Viðskipta- og sérfræðinámskeiðin fara fram í Holland Park Gardens, sem er sérhæft fræðslusetur fyrir stjórnendur og staðsett í góðu hverfi nálægt miðborg Lundúna. Esnkunámskeið hjá London School of English eru sérsniðin að þörfum vinnandi fólks. Sem dæmi má nefna námskeið fyrir fólk í viðskiptum, lögmenn, verkfræðinga, lyfjafræðinga og starfsmenn hjá hinu opinbera. Þessi námskeið henta því vel fólki sem notar ensku í starfi sínu og vill geta bætt enskukunnáttuna á sínu sérsviði. Unnið er í litlum hóp, með fólki sem kemur víða að og áhersla er lögð á að sinna skilgreindum þörfum hvers og eins. back to top RICHARD LEWIS COMMUNICATIONS Richard Lewis Communications var stofnað árið 1990 og býður sérsniðnar lausnir á sviði tungumála og menningarlæsis með það að markmiði að gera fólk og fyrirtæki hæfari til starfa í alþjóðlegu umhverfi. Helsti styrkleiki Richard Lewis umfram samkeppnisaðila er víðtæk þekking á menningarskiptum (cross-culture) og meðal viðskiptavina eru fjölmörg heimsþekkt alþjóðleg fyrirtæki, ráðuneyti, viðskiptaskólar, stjórnendaráðgjafar og einstaklingar. Þjálfunin byggist á einstaklingskennslu, en viðskiptavinum er einnig boðið að taka þátt í hópvinnu, þegar það hentar óskum þeirra um sérstaka þjálfun, til dæmis á sviði funda, kynninga eða samningaviðræðna. Þannig er hægt að nýta saman tvær góðar þjálfunaraðferðir. Riversdown House Riversdown House er sérhannað þjálfunarsetur á herragarði á Suður-Englandi, í nágrenni Winchester og aðeins 1 klst. akstur frá Heathrow. Riversdown er staður með sögu (frá 14. öld), en allt húsnæði og aðbúnaður hefur verið færður til nútímahorfs. Þetta er kjörinn staður til þjálfunar fjarri ys og þys hins hefðbundna viðskiptaheims. Fjöldi þátttakenda hverju sinni er takmarkaður við 12-16 manns og innifalið í námskeiðsgjaldi er eftirfarandi: Þarfagreining og stöðumat fyrir og eftir námskeið • Þjálfun frá mánudegi til föstudags • Gisting í sérbýli með baðherbergi • Fullt fæði • Internet tenging • Frístundadagskrá og kynningar • 9 holu golfvöllur • Ferðir til og frá flugvelli.Sjá nánar: back to top THE CAMBRIDGE ACADEMY OF ENGLISH Cambridge Academy of English rekur enskuskóla (þjálfunarsetur) fyrir fagmenn og sérfræðinga og býður úrval enskunámskeiða, sem eru sérstaklega miðuð að starfsgrein viðkomandi. Helsti styrkleiki CAE er þekking og reynsla í þjálfun lögmanna, laganema og löglærðra. Fræðslusetur CAE er staðsett í úthverfi Cambridge og hámarksfjöldi sem dvelur þar samtímis er 19 manns. Meðalaldur er 35-40 ára og lágmarksaldur 25 ár. Aðbúnaður og umhverfi til enskunáms er í faglegt og samhliða þjálfuninni kynnast þátttakendur einnig sérfræðingum og fagmönnum frá fjölda þjóðlanda, auk þess sem í boði eru heimsóknir til fyrirtækja og stofnana. Sjá nánar>> back to top ACCENT INTERNATIONAL Accent var stofnað árið 1988 sem sérhæft ráðgjafar og þjálfunarfyrirtæki á sviði tungumálanáms. Námskeiðin hjá Accent eru fyrir stjórnendur og sérfræðinga sem vilja ná árangri fljótt og vel og bæta enskukunnáttuna á sínu sérsviði. Notuð er nútímatækni, persónuleg aðferðafræði og námsefnið tengt þörfum hvers og eins. Aldrei eru fleiri en 25 stjórnendur eða sérfræðingar samtímis í skólanum og oft aðeins 10-12. Leiðbeinendur eru allir með langa reynslu af kennslu í viðskiptaensku og sérhæfðri ensku. Gisting Accent mælir með heimagistingu hjá enskum fjölskyldum sem bjóða gistingu í hæsta gæðaflokki. Helsti kosturinn við heimagistingu er að vera boðinn velkominn á enskt heimili, sem þýðir fulla aðlögun að enskumælandi umhverfi þar sem tækifæri gefst til að halda áfram að þjálfa enskuna og ná þannig betri árangri. Sjá nánar >> Þeir sem vilja frekar búa á hóteli bjóðast ýmsir möguleikar og gæðaflokkar. Einnig er hægt að taka fjölskylduna með og nýta sumarfríið að hluta til málanáms. Cottage Sjá nánar >> Staðsetning Accent hefur byggt upp mjög góða aðstöðu í Bicton College á suðurströnd Devon, einu fegursta héraði Englands. Allur aðbúnaður er fyrsta flokks og kennslustofurnar bjartar og rúmgóðar með útsýni til sjávar, þar sem þátttakendur geta einbeitt sér að náminu í fallegu og þægilegu umhverfi. Ferðatími milli Exeter og Hethrow er 3 tímar. Sjá nánar um Devon >> back to top LANGUAGE SPECIALIST INTERNATIONAL LSI sérhæfir sig í framsæknum kennsluaðferðum og hefur verið valinn einn af "Top 10" enskuskólum í Bretlandi. Áhersla er lögð á námskeið fyrir stjórnendur fyrirtækja, svo og millistjórnendur innan fjármála-, viðskipta- og tæknigreina. LSI býður einnig úrvals enskukennslu fyrir almenna starfsmenn og námsmenn. Skólinn er í eigin húsnæði á einum besta stað í Portsmouth, rétt við aðal verslunar- og veitingahúsahverfið og í göngufæri frá ströndinni. Portsmouth er gamall, fallegur strandbær á suðurströnd Englands, mitt á milli Brighton og Bournemouth. Borgin býður upp á fjölbreytta möguleika til skemmtana og afþreyingar á borð við tennis, golf, fótbolta, seglbretti og siglingar. Í rúm 800 ár hefur Portsmouth verið miðstöð verslunar- og siglinga, aðal-flotastöð Breta hefur þar aðstöðu og þar er einnig að finna helstu minjar um sögu siglinga í heiminum. Portsmouth er vinsæll ferðamannastaður jafnt sumar sem vetur. Lestarferð frá London tekur rúman klukkutíma. back to top TORQUAY INTERNATIONAL SCHOOL TIS hefur allt frá stofnun árið 1972 verið leiðandi í almennri enskukennslu sem og kennslu fyrir sérfræðinga og stjórnendur. TIS er málaskóli sem leggur áherslu á persónulega þjónustu í þægilegu umhverfi, með það að markmiði að veita hágæða kennslu, þar sem allir geta náð hámarks árangri. TIS býður úrval námskeiða fyrir almenna starfsmenn, sérfræðinga og námsmenn sem vilja bæta enskukunnáttu sína. TIS hefur á að skipa úrvals kennurum með mikla og víðtæka reynslu og hafa flestir þeirra unnið hjá skólanum í áratugi. Til viðbótar sérhæfðri menntun sem enskukennarar fyrir útlendinga, hafa margir þeirra einnig persónulega reynslu og menntun í ýmsum greinum viðskipta. Þetta eykur hæfni þeirra til að veita hverjum og einum sérhæfða ráðgjöf á ólíkum sviðum og veitir innsýn og skilning á því sem brennur á áhugasömum þátttakendum. Torquay er fallegur 60.000 manna strandbær á Suð-vesturströnd Englands. Náttúrufegurð Devon héraðs er rómuð, óendanlegar hvítar sandstendur, fallegar sveitir og lítil sjávarþorp. Ferðatími milli Hethrow og Torquay er 3,5 klst. Sjá nánar >> back to top THE ENGLISH LANGUAGE CENTER - BOSTON - USA The English Language Center var stofnaður árið 1978 og er með aðsetur í Boston og Los Angeles. ELC málaskólinn í miðborg Boston er í nýuppgerðu húsnæði rétt við "Prudential Center" og býður mikið úrval enskunámskeiða, bæði almenn námskeið og einnig sérhæfð námskeið fyrir stjórnendur og sérfræðinga. ELC er einn af leiðandi aðilum á sínu sviði í Bandaríkjunum og fagleg kunnátta og persónuleg nálgun setur ELC feti framar öðrum. Kennarar og leiðbeinendur eru allir með háskólapróf og langa reynslu af kennslu á sínu sviði. Sjá nánar: Gisting. Í boði er gisting í vel búnum studio-íbúðum í göngufæri við skólann, í íbúðarhverfi þar sem nemar hafa næði og geta verið út af fyrir sig. Sjá nánar: Boston á sér langa og merka sögu og er ein þekktasta mennta- og menningarborg Bandaríkjanna. Þar er að finna það besta úr bandarísku þjóðlífi, falleg og friðsæl hverfi, fágaðan miðbæ og spennandi heimsborg. Kaffihús, klúbbar, söfn, verslanir og veitingastaðir eru á hverju strái og úrval leikhúsa. Boston er skemmtileg borg þar sem fjöldi nemenda lífgar upp á mannlíf allt árið um kring, en á svæðinu eru yfir 30 háskólar og af þeim er Harvard einna þekktastur. Sjá nánar: back to top Lingo
- Málamiðlun
Bankastræti
5 101 Reykjavík
Sími 562 2220 info@lingo.is
|