![]() |
|||
|
|||||||||||||
|
SPÆNSKUNÁMSKEIÐ.
Spænska er annað mikilvægasta tungumálið í
alþjóðasamskiptum í heiminum og þriðja
stærsta tungumálið í viðskiptum og stjórnmálum
Eftirspurn eftir spænskumælandi fólki á vinnumarkaði
hefur aukist töluvert á síðustu árum með
vaxandi viðskipta- og menningartengslum við spænskumælandi
þjóðir. ESCUELA DE IDIOMAS NERJA Málaskólinn Escuela de Idiomas Nerja er staðsettur í borginni Nerja á Costa del Sol. Skólinn var stofnaður árið 1980 og er viðurkenndur af Verslunarráðinu í Madrid og háskólanum í Alcalá sem tryggir gæði námsins og þjónustunnar. Kennarar eru allir sérhæfðir í spænskukennslu fyrir útlendinga og mismunandi námskeið eru í boði; jafnt við hæfi þeirra sem vilja bæta almenna spænskukunnáttu sína sem og hinna sem vilja bæta við kunnáttu á sérstöku sviði, svo sem í ferðamálum, stjórnun, viðskiptum, eða spænskukennslu. Aðbúnaður og aðstaða eins og best gerist og gisting á Residence er fyrsta flokks og með einkasundlaug. NERJA er 20.000 manna borg í 50 mín. fjarlægð frá flugvellinum á Malaga og býr yfir sönnum karakter Andalúsíu. Nerja er umkringd fjöllum á aðra hlið og horfir við ströndinni á hina. Loftslagið gæti vart verið betra og meðalhiti ársins er 20°C. Nerja er aldagömul borg og þekkt fyrir gestrisni íbúanna sem viðhalda hefðum svæðisins og því eru reglulega í gangi hátíðir af ýmsu tagi. Flamingo dansinn er ein afmörgum hefðum á þessu svæði. Í frítímanum er hægt að hafa nóg fyrir stafni eins og að skoða menningu og minjar, stunda fjallgöngur, eða flatmaga í sólinni. DON QUIJOTE - SPÁNN OG SUÐUR-AMERÍKA Hverjar sem óskir þínar eru; Faglegar, undirbúningur fyrir háskólanám, eða einfaldlega áhugi á að læra spænsku og hafa gaman af því, þá býður DQ námskeið sem henta. DQ búður almenn námskeið bæði fyrir byrjendur og lengra komna og einnig sérhæfð námskeið fyrir flugþjóna, viðskiptafólk og spænskukennara. Spænskunámskeið hjá DQ snýst ekki aðeins um að læra tungumál, heldur einnig að öðlast dýrmæta reynslu og hitta fólk víða að úr heiminum. DQ var stofnaður árið 1986 og er einn af stærstu og virtustu aðilum í Evrópu sem bjóða spænskunámskeið. DQ er leiðandi aðili á sviði spænskukennslu, rekur sína eigin skóla og hefur þannig fulla stjórn á gæðum kennslunnar. Allir kennarar eru háskólamenntaðir og með Spænsku sem móðurmál. DQ rekur málaskóla í eftirtöldum borgum á Spáni: Barcelona, Granada, Madrid, Salamaca, Seville og Tenerife. DQ rekur einnig skóla víða í Suður Ameríku. ESADE - BARCELONA Esade málaskólinn var stofnaður fyrir rúmum 40 árum og er í dag sérhæfður "Executive Centre" í stjórnendafræðslu, búinn öllum nútíma þægindum. Málaskólinn er deild í Esade viðskiptaháskólanum. Námskeiðin sem eru krefjandi, hagnýt og markviss eru aðlöguð tungumálakunnáttu hvers og eins. Þannig er hægt að ná miklum árangri á stuttum tíma og þátttakendur fá t.d. þjálfun í sérhæfðu tungutaki, halda kynningar og standa í samningaviðræðum og og auka þannig sjálfstraust og hæfileika til að leysa úr aðstæðum sem upp koma í viðskiptum. Litið er til sérstakra óska og þarfa þátttakenda og boðið upp á umhverfi sem er þægilegt, en um leið hvetjandi. Leiðbeinendur búa yfir mikilli reynslu á sínu kennslusviði og eru auk þess þrautþjálfaðir kennarar. Hægt er að velja um nokkur mismunandi námskeið: Almennt (Intensive) Samsett (Small group and individual) Viðskiptaspænska (Business Spanish) Almennt og sérhæft (Semi intensive) Einkakennsla (Tailor made). Gisting þarf að uppfylla ákveðin gæði og hverjar sem óskir þínar eru gerum við okkar besta til að finna húsnæði við hæfi. Ýmsir gistimöguleikar eru í boði, svo sem heimagisting, gisting á heimavist, í íbúð, íbúðarhótel eða hótel. Námskeið: Í boði eru almenn námskeið "Standard Course" (20 stundir) Samþjöppuð "Intensive Course" (30 stundir) Samsett "Standard+Business" eða "Standard+One-to-One Course" (almennt og einkakennsla) Undirbúningsnámskeið fyrir alþjóðleg tungumálapróf Einkakennsla. Lingo - Málamiðlun Bankastræti 5 101 Reykjavík Sími 562 2220 info@lingo.is |
![]() ![]() |
||||||||||||
![]() |
|||||||||||||