|
SÉRHÆFÐ
NÁMSKEIÐ FYRIR KENNARA - Teachers
Tungumálakennarar sem ekki eru "native speakers" og uppeldismenntað
fólk, geta leitað nýrra leiða, fengið nýjar
hugmyndir og deilt reynslu sinni með öðrum kennurum. Faglegt
nám í nýju og hvetjandi umhverfi þar sem neminn
er í aðalhlutverki styrkir sjálfsmyndina, eykur víðsýni
og síðast en ekki síst - eflir máltilfinninguna.
Hjá samstarfsskólum Lingo-Málamiðlunar starfar
vel menntað fólk sem hefur sérhæft sig í
kennslu fyrir tungumálakennara. Fjölbreyttar kennsluaðferðir
miða að því að hver og einn fái notið
sín til fulls í hvetjandi umhverfi.
Lögð er sérstök áhersla á að vinna
úr upplýsingum um óskir þátttakenda,
sem sendar eru til skólans áður en námið
hefst, þannig að hver og einn fái sem mest út
úr því. Samt sem áður er viss kjarni sem
byggt er á í öllum námskeiðum.
Vinsamlegast
hafðu samband til að fá nánari upplýsingar.
Lingo
- Málamiðlun
Bankastræti
5 101 Reykjavík
Sími 562 2220 info@lingo.is |