ISTITUTO EUROPEO DI DESIGN
MASTER COURSES IN ENGLISH (or translated in English)


Mastersnám í hönnun miðar að því að þjálfa sérfræðinga sem vilja þróa hæfileika sína á sviði hönnunar, rannsókna og stjórnunar. Kennarar og leiðbeinendur eru sérfræðingar og fagmenn sem ýta undir sköpun og vönduð vinnubrögð. Hjá IED er í boði góð aðstaða og námskeiðin eru haldin í samvinnu við metnaðarfull fyrirtæki, þar sem „starfsþjálfun” er hluti af hverju námskeiði.

Hér fyrir neðan eru tenglar inn á viðkomandi skóla og námskeið í boði:

FASHION
DESIGN
VISUAL COMMUNICATION
MANAGEMENT
T

Aðferðafræði í meistaranámi hjá IED byggist á tveim meginstefnum. Annað er verkefnatengd þróun sem leiðir til raunhæfra hönnunarlausna og hin er rannsóknatengd hönnun þar sem unnið er að akademískum rannnsóknum í hönnunarfræðum.

Námskeiðin eru misjöfn að uppbyggingu eftir hönnunarsviðum en byggja öll á ítalskri hönnunarhefð sem miðar að opinni, forvitinni og skapandi hugsun sem leiðir til góðra lausna á viðfangsefninu.

Í atvinnulífinu er eftirspurn eftir starfsfólki sem hefur tileinkað sér sveigjanleika og hefur hæfileika til að setja sig vel inn í viðfangsefnið, hvort heldur er við þróun á þjónustu, þróun nýrra vara eða nýrra tæknilausna. Í meistaranámi já IED er lagður grunnur að slíkum eiginleikum.


Lingo - Málamiðlun Bankastræti 5 • 101 Reykjavík • Sími 562 2220 • info@lingo.is