![]() |
|
|||||||||||
|
MASTERSNÁM
Í HÖNNUN, TÍZKU, LISTUM OG MIÐLUN Istituto Europeo di Design IED hefur í rúm 40 ár starfað á sviði menntunar og rannsókna í hönnun, tísku, sjónrænum listum og samskiptatækni. Skólinn er með starfsemi í Milanó, Róm, Torinó, Feneyjum og Flórens á Ítalíu og í Barcelona og Madrid á Spáni. Hjá IED er boðið er upp á þrjár leiðir í Meistarnámi. Ein er brúarnám fyrir nema úr t.d. viðskipagreinum yfir í mastersnám í hönnun og samskiptum (Master, 1 st. Level) og síðan eru tvær leiðir í fullgildu Mastersnámi í hönnunarstjórnun (Professional Master 2nd Level) og rannsóknartengdu mastersnámi (Research Master (2nd Level). Sérhver deild er skipuð völdum sérfræðingum og fagmönnum, sem ýta undir sköpun og vönduð vinnubrögð. Nemendur hafa aðgang að fullkomnum rannsóknar- og vinnustofum við nám sitt. IED hefur lengi verið í náinni samvinnu við alþjóðleg og metnaðarfull fyrirtæki og „starfsþjálfun” er hluti af hverju námskeiði. Mastersnám hjá IED er fullt nám, sem nær yfir eitt ár. Lögð er áhersla á möguleika nema til að þróast faglega og kynnast nýjungum á sínu sérsviði.
University of The Arts London UAL samanstendur af sex háskólum, sem í gegnum tíðina hafa menntað fjölmarga vel þekkta blaðamenn, listamenn, leikara, ljósmyndara, kvikmyndagerðarmenn og útgefendur. Saman standa þessir nemendur fyrir listsköpun í sinni bestu og breiðustu mynd og hafa haft víðtæk áhrif á umhverfi sitt. Að loknu mastersnámi hjá UAL verðurðu sjálfkrafa meðlimur í nemendasambandinu - sjá nánar: Hjá UAL býðst framsækið og fjölbreytt nám í skapandi umhverfi þar sem ólíkir skólar koma saman og mynda eina heild og nemendum bjóðast ótal tækifæri til að þroskast og þróa hæfileika sína. Aðgangur að þekktum sérfræðingum og kennurum gefur nemendum ekki síst möguleika á að finna sig faglega og þróa tengslanet innan háskólaumhverfis og á alþjóðlegum vinnumarkaði.- SJÁ NÁNAR: Apicius, The Culinary Institute of Florence Hjá Apicius býðst eins árs mastersnám í matargerðarlist matreiðslumenn, þjóna og gestgjafa, sem vilja bæta og þroska hæfileika sína og starfsferil. Námið byggir á Ítölskum hefðum sem þróast hafa á löngum tíma og gert ítalska matarlist þekkta um allan heim. Færni í skurði á grænmeti eða það að geta flippað ommelettu er ekki það eina sem einkennir góðan matreiðslumann, heldur þekking á hráefni, útfærsla á uppskriftum, kunnátta í sögu og þróun í matargerðar og ekki síst hæfileiki til að búa til eitthvað nýtt og spennandi. Nám hjá Apicius gefur nemum góðan skilning á ítalskri matarlist og eykur möguleika þeirra til að þróast sem framúrskarandi fagmenn. Aðeins 10 nemar komast að á hverju ári og námi lýkur með Master Certificate in Italian Cuisine. - SJÁ NÁNAR: Lingo - Málamiðlun Bankastræti 5 101 Reykjavík Sími 562 2220 info@lingo.is |
![]() ![]() ![]() |
||||||||||