|
NÁMSLÁN
Alþjóðlegir fagskólar sem eru boði hjá
Lingo-Málamiðlun eru viðurkenndir af Lánasjóði
Íslenskra Námsmanna (LÍN).
Mastersnemar líkt og aðrir nemar í framhaldsnámi
geta því tekið lán fyrir skólagjöldum,
auk láns fyrir framfærslu. Hægt er að sækja
um lán hjá LÍN Borgartúni 21 101 Reykjavík
Sími 560400 Vefsvæði www.lin.is
Undirbúningsnámskeið í tungumálum í
8 vikur eða lengur, er einnig lánshæft til framfærsluláns.
Við hvetjum því alla þá sem hyggja á
nám erlendis að nýta sér þennan rétt,
þar sem kunnátta í tungumálinu og þekking
á menningu viðkomandi lands auðgar og auðveldar aðlögun.
Sótt eru um svokölluð sumarlán vegna undirbúningsnámskeiða.
Mikilvægt er að sækja tímanlega um málanámið
ef ætlunin er að nýta sér þennan rétt
og leggja þarf fram staðfestingu á skráningu,
auk staðfestingar á skráningu í sérskólanámið,
þar sem fram kemur að skráningargjald registration
fee hafi verið greitt. Ekki er lánað fyrir uppihaldi
vegna tungumálanáms sem varir skemur en 8 vikur.
Vakin er athygli á nýja Evrópska sjúkratryggingakortinu.
Nánari upplýsingar um það eru á vef Tryggingarstofnunar
www.tr.is
.
Lingo
- Málamiðlun
Bankastræti
5 101 Reykjavík
Sími 562 2220 info@lingo.is |
   |