![]() |
||||||
|
||||||||
|
Stjórnendur
& eigendur
Arnþrúður Jónsdóttir starfaði hjá Flugleiðum (nú Icelandair) um níu ára skeið, áður en hún stofnaði Vistaskipti & Nám árið 1990, en fyrirtækið sérhæfði sig í alþjóðlegum menningarskiptum. Hún byggði upp og rak Vistaskipti & Nám í 12 ár og hefur því haldgóða þekkingu og reynslu af alþjóðlegu starfi. Hún sá einnig í 8 ár um umsóknir og úthlutanir á Leonardo da Vinci styrkjum fyrir námsfólk og ungt fólk á vinnumarkaði. Árið 1999 sinnti Arnþrúður um 4 mánaða skeið störfum framkvæmdastjóra hjá American Institute for Foreign Study í Höfðaborg í Suður Afríku. Ásamt fleirum stofnaði hún ferðaskrifstofuna Stúdentaferðir ehf. árið 2002 og starfaði þar í rúmt ár við uppbyggingu þess fyrirtækis. Arnþrúður
Jónsdóttir, Sölu- & þjónustustjóri
- eigandi | thruda@lingo.is Sveinn Magnússon hefur starfað við markaðsmál, hönnun og auglýsingagerð frá árinu 1980 og hefur á þeim tíma unnið fyrir fjölmörg íslensk og erlend fyrirtæki. Árið 1983 stofnaði Sveinn ESSEMM auglýsingar og markaðsráðgjöf sem lagði áherslu á markaðstengda þjónustu og starfaði það fyrirtæki í 15 ár á þeim grunni. Hann hefur einnig tekið þátt í verkefnum utan Íslands og starfaði sem meðeigandi og markaðsráðgjafi hjá Idé Film í Stokkhólmi við framleiðslu sjónvarpsauglýsinga fyrir norrænan markað frá 1991-1994 og framleiðslu heimildarmynda frá 1994-1998. Sveinn vann að markaðsmálum hjá Vistaskiptum & Námi frá árinu 1996-2001 og Stúdentaferðum 20022003. Frá árinu 1996 er Essemm einstaklingsfyrirtæki, sem í samvinnu við hæfustu fagmenn á hverju sviði leggur áherslu á að leysa skilgreind hönnunar- og markaðsverkefni og ná árangri við úrlausn þeirra. Táknmynd fyrirtækja og uppbygging vörumerkja (Branding) hafa í gegnum tíðina verið stór þáttur í starfsemi Essemm. Sveinn Magnússon,
framkvæmdastjóri - eigandi | sveinn@lingo.is
Lingo - Málamiðlun Bankastræti 5 101 Reykjavík Sími 562 2220 Fax 568 2040 info@lingo.is |