![]() |
||||||
|
||||||||
|
Lingó-Málamiðlun var stofnað í ársbyrjun 2004 og býður lausnir sem auðvelda einstaklingum og fyrirtækjum að taka þátt í alþjóðasamfélaginu. Essemm var stofnað árið 1983 sem auglýsingastofa og markaðsráðgjöf og starfaði sem slík um 15 ára skeið. Á þeim tíma vann Essemm með fjölmörgum islenskum fyrirtækjum og stofnunum að stefnumótun í markaðssamskiptum og framleiðslu kynningarefnis. Essemm starfaði einnig í Svíþjóð við gerð sjónvarpsauglýsinga og heimildarmynda fyrir Norrænan markað á árunum 1990-1998. Árið 1990 kom Essemm á fót fyrirtækinu Vistaskipti & Nám / Vista X Change sem sérhæfði sig í alþjóðlegum menningarskiptum. Vistaskipti óx á 12 árum úr lítilli skrifstofu sem annaðist milligöngu um au pair ráðningar erlendis, í það að verða einn stærsti aðilinn í ferðaþjónustu fyrir ungt fólk. Vistaskipti & Nám var selt til ferðaskrifstofunnar Stúdentaferða í ársbyrjun 2002. Frá árinu 1996 er Essemm einstaklingsfyrirtæki, sem í samvinnu við hæfustu fagmenn á hverju sviði, leggur áherslu á að leysa skilgreind hönnunar- og markaðsverkefni og ná árangri við úrlausn þeirra. Lingo
- Málamiðlun
Bankastræti
5 101 Reykjavík
Sími 562 2220 Fax
568
2040 info@lingo.is |