Istituto Europeo di Design (Ítalíu)

Istituto Europeo di Design (IED) einn virtasti hönnunarskóli Evrópu, hefur í yfir 50 ár verið í fararbroddi á sínu sviði. IED býður hagnýtt nám, sem sameinar frumkvæði, hugmyndir og tækni. Enn fremur er byggt á að verkvit, skilningur og þekking sé metin út frá hagnýtum gildum. Samstarf við helstu fyrirtæki heims á sviði hönnunar er þungamiðja kennslustefnu IED, þar sem verklegt og fræðilegt nám helst í hendur.

Hjá IED á Ítalíu býðst eins árs Aðfararnám þriggja ára Bachelor nám, þriggja ára Diploma nám og eins og tveggja ára Mastersnám, í Flórens, Feneyjum, Milanó, Róm og Torínó.

“Fast Track” Nýjar námsleiðir í BA námi, sem byrja í Janúar.

Fashion Design • Graphic Design • Interior Design • Transportation Design.
“2nd intake“ prógrammið sem hefst í janúar er 30 vikna hraðferð sem hleypir nemum beint inn á annað námsár haustið 2026. Kennsla hefst 26. janúar og kennt er til 8. ágúst. Síðan er er tveggja vikna frí, en náminu lýkur með 4 vikna „make-up session“ 24. ágúst til 19. september. Þessi hraðferð er nokkuð krefjandi, en gerir nemum kleift að ljúka náminu á tveimur og hálfu námsári í stað þriggja. Sjá nánar;

Aðfararnám – Academic Foundation in Italian Creativity & Design

Aðfararnám er eins árs nám til undirbúnings grunnháskólanámi. Slíkt nám gefur tækifæri til að kanna mismunandi svið skapandi greina, áður en þú velur námsleið í BA námi. Þetta fornám er þannig góð leið til að þróa núverandi hæfileika og áhugasvið, eða bara njóta eins árs í skapandi umhverfi. Námið er staðnám í Como Flórens, Milanó og Róm, hjá Accademia Aldo Galli. Námsbyrjun er í Janúar og Nóvember. Við námslok býðst öruggt aðgengi að frekara námi hjá IED. Sjá nánar;

Dæmi um námsleiðir á ensku í Bachelor / Diploma námi:

Fashion (Tíska): Fatahönnun (Fashion Design) • Tískustílisti (Fashion Stylist & Communication) • Tískumarkaðsfræði (Fashion Marketing) • Skartgripahönnun (Jewellery Design).

Design (Hönnun): Innanhússhönnun (Interior Design) • Samgöngu- og bílahönnun (Transportation Design) • Vöruhönnun (Product Design).

Visual Arts (Sjónlistir): Grafísk hönnun og stjórnun (Graphic Design and Art Direction) • Kvikmyndagerð (Cinema & Video Design) • Ljósmyndun (Photography) • Myndskreyting (Illustration) • Hljóðhönnun (Sound Design) • Leikjahönnun (Animation & Game Design) • Videohönnun (Video Design) • Hreyfimundagerð (Illustration & Animation).

Strategy, Marketing and Communication (Markaðssamskipti og stjórnun): Stjórnun fyrir skapandi greinar (Marketing & Management for Creative Industries) • Listræn samskipti (Art & Communication) • Samskiptahönnun (Communication Design) • Tískumarkaðsfræði (Fashion Marketing & Communication).

Hér fyrir neðan eru tenglar eftir sviðum og borgum:

TÍZKA
HÖNNUN
SJÓNLISTIR
STJÓRNUN
Milan Milan Milan Milan

Rome

Rome Rome

Rome

Florence

Florence Florence

Florence

Torino (it) Torino Torino (it)

Torino (it)

Meistaranám á ensku.

• Vottað af MIUR, Ítalska menntamálaráðuneytinu • 2 ár • 120 ECTS. Aðgangskrafa BA / DIP gráða úr grunnháskólanámi. Markmiðið er að auka þekkingu til faglegra starfa með áherslu á menningu og sérfræðiþekkingu. Nemar hljóta þjálfun í mismunandi aðferðafræði og öðlast hæfni til að þróa þróa verkefni og margþætta stjórnunarhæfileika. Námsleiðir;

Paining and digital Art • Product Design • Interior Design • Fashion Design • Visual Communication • Textile Design • Interaction Design • Interior and Furniture Design • Design X Other Species (Transdisciplinary Design). Sjá nánar; 

IED skólarnir eru allir reknir eftir sömu hugmyndafræði, en hver og einn hefur samt sína sérstöðu byggða á sérhæfingu, staðsetningu og svæðisbundinni menningu. Skólarnir eru vel í borg settir, í góðu húsnæði og tæknilega vel búnir. Kennsla fer fram á ensku, eða ítölsku.

Umsóknarfrestur fyrir alþjóðlega nema sem hefja nám að hausti er til loka ágúst. Vinsamlegast hafið samt í huga að takmarkaður fjöldi er í hverjum bekk — og fyrstur kemur fyrstur fær. Þess vegna er mælt með að sótt sé um á vormánuðum.

Húsnæðismál og þjónusta við nema

Við aðstoðum þig við umsóknarferlið.

Lingo er vottaður samstarfsaðili Istituto Europeo di Design (Ítalíu) á Íslandi. Starfsfólk Lingo veitir allar nauðsynlegar upplýsingar, leiðbeinir um námsval, útvegar umsóknargögn og aðstoðar við umsóknarferlið.

Eftirtalin gögn þurfa að fylgja umsókn:

  • 📝 Umsóknarblað
  • 📨 Hvatabréf
  • 📜 CV – ferilsskrá
  • 🎓 Staðfest gögn um námsferil.
  • Umsagnir / meðmæli.
  • 🛂 Ljósrit af vegabréfi
  • 🌄 Portfólío.
  • 📷 2-4 passamyndir

Nánari upplýsingar á vef Istituto Europeo di Design (Ítalíu)

Hafðu samband við aðstoðum þig með ánægju