English Language Center
The English Language Center
ELC er með aðsetur í Boston, Los Angeles og Santa Barbara. Skólinn var stofnaður árið 1978, býður fjölbreytt úrval enskunámskeiða og er einn af leiðandi aðilum á sínu sviði í Bandaríkjunum. Sagt er að í Boston sé töluð fallegasta enskan í Bandaríkjunum.
Kennarar og leiðbeinendur hjá ELC eru allir með háskólapróf og hafa langa reynslu af kennslu á sínu sviði. Fagleg kunnátta og persónuleg nálgun setur ELC feti framar öðrum.
ELC starfar einnig í Los Angeles, í nálægð við Hollywood og vinsælar baðstrendur. Auk þess rekur ELC einnig skóla í Santa Barbara sem er heimsþekktur staður fyrir fallegt umhverfi og góðar baðstrendur.
Hér fyrir neðan eru nánari upplýsingar:
ALMENNT NÁMSKEIÐ | SAMSETT NÁMSKEIÐ | GISTING
Boston á sér langa og merka sögu og er ein þekktasta mennta- og menningarborg Bandaríkjanna. Þar er að finna það besta úr bandarísku þjóðlífi, falleg og friðsæl hverfi, fágaðan miðbæ og spennandi heimsborg. Kaffihús, klúbbar, söfn, verslanir og veitingastaðir eru á hverju strái og úrval leikhúsa. Boston er skemmtileg borg þar sem fjöldi nemenda lífgar upp á mannlíf allt árið um kring, en á svæðinu eru yfir 30 háskólar og af þeim eru Harvard og MIT einna þekktastir.