New School of Architecture + Design
New School of Architecture + Design er staðsettur í “East Village” í San Diego á vesturströnd Bandaríkjanna og er framsækin stofnun í borgarumhverfinu. NSAD býður fjölmargar námsleiðir á sviði arkitektúrs, byggingastjórnunar, iðnhönnunar og stafrænnar miðlunar.
Námsskrá byggist á traustum akademískum grunni, góðu samstarfi og hagnýtri reynslu “learning-by-doing” og tekur einnig mið af nútíma kennsluháttum sem eru samtvinnuð nálgun lista, vísinda, hugmyndafræði og starfsreynslu. Stefna NSAD er að vera skóli sem sannanlega getur hjápað nemum að laða fram sína listrænu hæfileika. Námið byggist á ástríðu, forvitni og rannsóknum, sem koma hönnunarhugmyndum í framkvæmd. Arkitektanámið hjá NSA+D er til dæmis í hópi 30 bestu í heimi.
Umgjörð fyrir innblástur
Staðsetning skólans í heimsborginni San Diego í Kaliforníuríki, dregur fram menningarlega og einstaklingsbundna hæfileika þeirra sem þar starfa. Hér blandast saman áhrif hefðbundinnar hönnunar frá austurströnd BNA, kyrrahafsmenning, áhrif frá Latnesku Ameríku, sem og áhrif heimsborgarinnar Los Angeles (aðeins tveggja tíma akstur í norður frá San Diego). Þetta umhverfi hefur haft sitt að segja um velgengni skólans sem hönnunarseturs.
Námsleiðir í BA og BSc námi
• Architecture (BA Arkitektúr) • Construction Management (BSc Byggingastjórn) • Interior Architecture & Design (BA Innanhússarkitekt) • Product Design (BA Vöruhönnun)
Námsleiðir í MA námi
• Construction Management (MA Byggingastjórn) • Architecture (MA Arkitektúr) • Science in Architecture (MSc Arkitektúr).
Námsskrá sem miðar að góðum árangri.
Námsleiðir hjá NSAD byggjast á nákvæmri, þverfaglegri námsskrá með alþjóðlega skírskotun gegnum Laureate International Network. NSAD var upphaflega stofnaður sem arkitektaskóli, en hefur þróast og útvíkkað starfsemi sína og býður nú einnig nám í hönnun og stafrænni miðlun. Námsskráin endurspeglar þá skoðun stjórnenda skólans að siðfræði og gæði hönnunar skipti máli fyrir samfélagið og nemar þurfi að læra að hugsa á skapandi og skilmerkilegan hátt. Námið hjá NSAD er sniðið að sérhæfðum þörfum hverrar faggreinar og miðar að því að nemar eigi góða reynslu úr námi sínu.
Upplýsingar um húsnæði • Google Maps New School
Umsóknarfrestur fyrir haustönn er 2. mars. Tekið er á móti umsóknum eftir þann tíma, en samþykkt þeirra tekur mið af því hvort námspláss séu tiltæk. Í stafrænni miðlun og forritun er námsbyrjun bæði í október og janúar.